Skip to content
Skip to product information
1 of 1

Plant Plasma led-lasermeðferð

16,250 kr
16,250 kr 25,000 kr
Sale Sold out

Plant Plasma – sérhæfð andlitsmeðferð fyrir stinnleika, raka og jafnari húðáferð

Með aldrinum getur húðin misst raka og teygjanleika. Línur verða sýnilegri og húðin getur virst þurrari, slappari eða ójafnari á litinn. Plant Plasma Growth Factors er andlitsmeðferð sem er hönnuð til að styðja við endurnýjun húðarinnar og vinna markvisst með þessar breytingar.

Hvernig virkar meðferðin?

Í meðferðinni sameinum við Chantarelle ljósmeðferð og sérhæft peptíðakerfi með vaxtarþáttunum EGF úr plöntum og TGF-beta. Vaxtarþættir eru prótein sem gegna hlutverki í samskiptum frumna og endurnýjun húðar.

Markmiðið er að styðja við þá ferla húðarinnar sem tengjast kollageni, elastíni og rakajafnvægi. Kollagen gefur húðinni styrk og stinnleika, elastín hjálpar henni að halda teygjanleika og hýalúrónsýra bindur raka. Meðferðin miðar þannig að því að húðin verði mýkri, rakameiri og jafnari að áferð.

Fyrir hverja hentar Plant Plasma?

Plant Plasma getur hentað þér ef þú vilt vinna með fínar línur eða dýpri hrukkur, minnkaðan stinnleika, þurrk, ójafnan húðlit eða sýnileg ummerki eftir sól.

Meðferðin er án nála og hægt er að koma í hana allt árið. Fyrir markvissa meðferð mælum við með 3–5 skiptum með 10–14 daga millibili.

Ertu óviss um hvort Plant Plasma henti þinni húð? Hafðu samband við okkur hjá Heilsu & Útliti og við hjálpum þér að velja meðferð út frá því sem þú vilt vinna með.

In stock (20 units), ready to be shipped
View Product Details