Sogþrýstingsnudd SPM

Sogþrýstingsnudd SPM

 


Sogþrýstings nudd SPM er samsetning af nuddi og nokkurs konar mjólkun og kallast mjólkunarnudd í Þýskalandi. Þar í landi er nuddið vel þekkt og mikið notuð líkams- og andlitsmeðferð á meðferðar- og snyrtistofum. Mjólkunarnuddið er ævagömul aðferð og hefur verið notuð víða um heim í lækningarskyni t.d.

á Indlandi, í Grikklandi og Egyptalandi.

Nuddið er heildræn snyrtifræðileg andlits- og/eða líkamsmeðferð.

Með SPM aðferðinni er meðferðaraðilinn nuddaður með undirþrýstingi

sem er leiddur inn í sérstakar meðferðarbyssur.

Mismunandi meðferðarbyssur eru notaðar fyrir hin ólíku svæði líkamans.

Mögulegt er að vinna með tvær meðferðarbyssur samtímis.

Hægt er að framkvæma mismunandi líkamsmeðferðir með SPM tækinu

með því að stýra styrk undirþrýstingsins og nota breytilega nuddtækni.

Þannig er hægt vinna með mismunandi meðferðir allt eftir því hvert markmiðið er.

Sem dæmi má nefna er hægt að nota meðferðina í að að sía út umfram sogæðavökva,

endurnýja húðvefinn, örva efnaskiptin og/eða fitubrennsluna (tilvalið fyrir vandamálasvæði)

eða einfaldlega til þess að gera húðina stinnari.

SPM nuddið gefur alla jafnan sjáanlegan árangur strax eftir meðferðina

og að sama skapi finnur meðferðaraðilinn fyrir aukinni vellíðan um leið.

Meðferðin hentar öllum þeim sem sækjast eftir fljótvirkum en jafnframt viðvarandi árangri.

Í andlitsmeðferðum og meðferðum á hálsi og bringu hentar SPM mjög vel til meðhöndlunar á húðvandamálum

eins og bólum og rósroða fyrir utan að vinna á mjög árangursríkan hátt á öldrun,

hrukkum og einnig til andlitslyftingar.

Á sviði líkamsmeðferða uppfyllir SPM nuddið kröfur um mismunandi meðhöndlun á appelsínuhúð

á sviði sogæðavökvasíunar með því að auka fitubrennslu, stinna húðvefinn og virkja efnaskiptin

þannig að þau verði hraðari. Eins nýtist það mjög vel sem slökunarnudd og til að mýkja upp stirða vöðva.

 

Hver tími í SPM meðferðinni tekur á milli 30-60 mínútur,

allt eftir því hvert markmiðið með meðferðinni er og hversu stórt svæðið er sem á að meðhöndla.

Ýmsar andlitsmeðferðir nýta SPM sem mikilvægan þátt eða undirbúning fyrir aðrar meðferðir (t.d. með sogæðavökvasíun, endurnýjunar húðar eða andlitslyftingar).

Þegar unnið er með tvær SPM meðferðarbyssur samtímis

styttist meðhöndlunartíminn um helming sem er sérlega hentugt.

Back to blog