Aroma Derm Gel vafningar

Aroma Derm Gel vafningar

Aroma Derm líkamsmeðferðin eru mjög vinsæl hjá þeim sem vilja bæta áferð húðarinnar.

AROMA DERM Vafningarnir:

  • Stinnir og þéttir húðina
  • Húðin verður silkimjúk 
  • Vatnslosandi
  • Minnkar appelsínuhúð
  • Minnkar ummál líkamans 
  • Losar óhreinindi í húð

Áhrif Aroma Derma Gel er að stinna og þétta húðina en um leið gera hana silkimjúka. 

Virku efnin í vafningunum örva losun óhreininda í húðinni og minnka hina hvimleiðu “appelsínuhúð” sem og ummál líkamans.

Hægt er að velja um 4 styrkleika á gelinu, soft, medium, strong og extra strong.

Meðferðin hentar einstaklega vel eftir mikið þyngdartap þar sem húðin hefur ekki fylgt eftir á sama hraða.

 Meðferðin fer þannig fram að gel, sem valið er fyrir hvern og einn, er borið á líkamann frá ökklum upp undir hendur og á upphandleggi.

Líkaminn er vafinn inn í plast og síðan er sérstakt hitateppi (Thermal Blanket) sem þú leggst í.

Á meðan er hlustað á slakandi tónlist í 40 mínútur þegar gelið er að virka.

Sjáanlegur árangur er eftir eitt skipti, en til að sjá verulega góðan árangur er æskilegt að taka fulla meðferð í Aroma Derm Gel meðferðinni. Þá er mælt með tveimur meðferðum á viku í ýmist þrjár eða sex vikur.

Til að viðhalda árangri er æskilegt að koma tvisvar sinnum í mánuði.​​

Back to blog