Bowen meðferð

Bowen meðferð

Bowentækni er bandvefslosunarmeðferð og er ekki sambærileg við neina aðra líkamsmeðferð sem stunduð er í heiminum í dag.

Bowentæknin er aðallega græðandi meðferð og felst í röð mjúkra hreyfinga yfir vöðva, sinar og aðra mjúka vefi og losar spennu sem hefur byggst upp, líkamlega og eða andlega. Bowentæknirinn notar fingur á ákveðin svæði og beitir mildum þrýstingi til þess að koma hreyfingu á vöðva og vefi.

Við það fer í gang ferli í bandvef líkamans til að laga það sem í ólagi er og halda öllu í réttu jafnvægi.
Með bandvefslosunartækni er losað um spennu og við það verður verkjalosun og endurnýjun á orku.

 

Bowentæknirinn meðhöndlar líkaman sem heild en meðhöndlar ekki; harða líkamsvefi, notar ekki nudd eða olíur, djúpan langvarandi þrýsting né áhöld af nokkru tagi.

Bandvefurinn heldur líkamanum saman og er gríðarlega sterkt en misþykkt efni.
Hann er alls staðar í líkamanum, umlykur öll líffæri, æðar, taugar, alla vöðva, tengir þá við bein og er fylliefni milli líffæra. Það sem er líka svo sérstakt við bandvefinn er að hann er heill / óslitinn frá hvirfli til ilja.
Það eitt hefur varpað fram þeirri spurningu hvort við séum með 600+ vöðva í líkamanum eða aðeins einn í 600+ slíðrum / pokum af bandvef.Áhrifin af meðferðinni er mjúk, nær djúpt og er afslappandi. Þess vegna er bowentæknin svo sérstök.


Osteopatar, hnykkjarar, sjúkraþjálfarar eru meðal annars þeirra mörgu starfsstétta sem nota bowentæknina.

Allir þeir sem nota þessa meðferð, furða sig á áhrifamætti þessarar mjúku og einföldu meðferðar.
Bowentæknir getur meðhöndlað alla óháð aldri.

Back to blog