1
/
of
1
Djúprakameðferð með LED
13,900 kr
13,900 kr
25,000 kr
/
Sale
Sold out
Finnst þér húðin fljótt verða þurr aftur, jafnvel þótt þú notir gott rakakrem? Absolute Rich er nærandi andlitsmeðferð fyrir húð sem er stíf, hrjúf eða hefur misst ljómann. Meðferðin snýst um að gefa húðinni raka og hjálpa henni að halda betur í hann.
Við byrjum á mildri peptíðflögnun sem fjarlægir dauðar húðfrumur af yfirborðinu og mýkir hrjúfa áferð. Síðan notum við ceramíðserum ásamt rauðu LED-ljósi. Ceramíð eru fita sem er náttúrulega til staðar í verndarhjúpi húðarinnar og hjálpar til við að halda rakanum inni.
Meðferðin hentar þér sem vilt að húðin verði mýkri viðkomu, líti ferskari út og að stífleikatilfinningin minnki. Hún er sérstaklega góð þegar kuldi og þurrt inniloft fara að segja til sín.
Couldn't load pickup availability
In stock (20 units), ready to be shipped
