Infrarauður klefi

Infrarauður klefi

Hvernig virkar infra-rauði klefinn?
Hefðbundin sauna flytur hitann með því að dreifa heitu lofti og hita líkamann þannig frá toppi til táar en infrarauðir ljósgeislar hita líkamann beint með djúphitun sem er við þægilegra hitastig (43-60°C) og hefur betri áhrif á heilsuna. Geislarnir fara um 4.5 cm inn í líkamann og örva innstu vefi og líffæri þannig að maður svitnar mun meira en í hefðbundinni sánu og líkaminn losar sig við óhreinindi sem erfitt er að losna við.

Infra-rauðir ljósgeislar
Kostir infra-rauðrar meðferðar hafa verið rannsakaðir í marga áratugi í Japan, Evrópu og Bandaríkjunum.
Infra-rauðir ljósgeislar eru m.a. notaðir á sjúkrahúsum til að halda hita á nýfæddum börnum. Infra-rauður ljósgeisli þýðir í raun djúphitun.

Þeir sem nota infra-rauða klefa mikið hafa séð að infra-rauðir ljósgeislar:

 Losa eiturefni úr líkamanum
- Auka virkni ónæmiskerfisins
- Styrkja hjarta- og æðakerfið
- Auka blóðflæði
- Auka súrefnisflæði
- Bæta útlit húðarinnar
- Styrkja öndunarfærin
- Brenna kaloríum
- Auka liðleika liða
- Hjálpa við fitulosun og minnka cellulite
- Hækka sársaukaþröskuld
- Lækka blóðþrýsting
- Lækka blóðsykur
- Lækka kólesteról
- Minnka verki
- Hjálpa til við að minnka bólgur og bjúg

Back to blog