Skip to content
Aroma Derm blautvafningar

Aroma Derm blautvafningar

Aroma Derm blautvafningar

Endurnærandi líkamsmeðferð sem styður við vellíðan, húðina og slökun

Aroma Derm blautvafningar eru einstaklega afslappandi líkamsmeðferð þar sem notaðir eru sérvaldir ilmkjarnaolíur, jurtaþykkni og virkar húðvörur sem vinna saman að því að næra húðina og veita líkamanum djúpa slökun.

Meðferðin hefur verið vinsæl í mörg ár meðal þeirra sem vilja styðja við vellíðan líkamans, draga úr tilfinningu um þrota og gefa húðinni aukna mýkt og raka.

 

Hvernig fer meðferðin fram?

Meðferðin hefst á því að virkar lausnir úr Aroma Derm línunni eru bornar á þau svæði sem á að meðhöndla.

Því næst er líkaminn vafinn inn í sérstök blaut bindi sem innihalda virku efnin. Vafningarnir hjálpa til við að halda hitastigi stöðugu og stuðla að því að húðin taki sem best við virku innihaldsefnunum.

Á meðan meðferð stendur yfir færðu tækifæri til að slaka á í notalegu umhverfi á meðan virku efnin vinna sitt verk.

Meðferðin tekur yfirleitt 45- 60 mínútur.

 

Helstu kostir meðferðarinnar

✔ Getur stuðlað að minni tilfinningu um bjúg og vökvasöfnun, hentar vel þeim sem glíma við fitubjúg.

✔ Styður við náttúrulegt sogæðaflæði líkamans

✔ Aukið blóðflæði

✔ Gefur húðinni raka og næringu

✔ Skilur húðina eftir mýkri og sléttari

✔ Getur dregið úr þyngslatilfinningu í fótum

 Virkar á appelsínuhúð
 Minnkar þrálátar fitufrumur
 Stinnir slappa húð
 Styrkir veikan vef
 Minnkar húðfellingar eftir megrun eða barnsburð
 Minnkar háræðaslit


Hversu margar meðferðir er mælt með?

Margir finna fyrir vellíðan strax eftir fyrstu meðferð.

Ef markmiðið er að vinna markvisst með bjúg, vökvasöfnun eða húðina er oft mælt með meðferðarkúr sem samanstendur af 6–10 skiptum, allt eftir markmiðum og þörfum hvers og eins.

Við ráðleggjum alltaf meðferðaráætlun sem er sniðin að þínum þörfum.

Til að hámarka árangurinn

Við mælum með að:

  • drekka vel af vatni eftir meðferð,
  • stunda reglulega hreyfingu,
  • borða fjölbreytt og næringarríkt fæði,
  • halda áfram með góðar húðumhirðu heima

Algengar spurningar

Er meðferðin sársaukafull?

Nei. Flestir upplifa hana sem mjög afslappandi og notalega.

Verður húðin þurr?

Nei. Þvert á móti verður húðin oft mýkri, rakameiri og silkimjúk eftir meðferðina.

Hvenær sé ég árangur?

Margir finna strax fyrir léttleika og minni þyngslatilfinningu. Upplifun og árangur er þó einstaklingsbundinn og fer meðal annars eftir lífsstíl og markmiðum.

Er hægt að sameina meðferðina öðrum meðferðum?

Já. Aroma Derm blautvafningar geta verið góð viðbót við aðrar vellíðunar- og líkamsmeðferðir.Eftir aðgerðir

Hvenær er meðferð ekki æskileg?

 Ef viðskiftavinur er veikur
 Nýrnavandamál
 Háþrýstingur
 Á meðgöngu
 Æðabólgur
 Blóðtappamyndun
 Stórir, sýnilegir æðahnútar

Meðferð Verð
Aroma Derm blautvafningar – 1 skipti 15.900 kr.
5 skipta kort 74.500 kr. (14.900 kr./skipti)
10 skipta kort 139.000 kr. (13.900 kr./skipti)
Back to blog